Video rekkinn
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó. Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans: https://www.facebook.com/videorekkinn
Episodes

Monday Jan 19, 2026
Monday Jan 19, 2026
Í þætti dagsins ræðum við pólitíkusa sem eru farnir að láta á sér kræla á TikTok aftur, eftir að hafa legið í dvala frá síðustu Alþingiskosningum. Við ræðum söngva og gamanmyndina One Battle After Another og vegferð hennar á Golden Globe. Ásamt því að þáttastjórnendur fara á dýptina í samanburði á Laugarásbíó og Smárabíó.
En fyrst og fremst ræðum við myndina 28 Years Later: The Bone Temple. Við bregðum aðeins út af vananum og hringjum í Kjartan Bíófíkill og ræðum við hann um þessa frábæru mynd.

Monday Jan 12, 2026
Monday Jan 12, 2026
Í þætti dagsins þótti þáttastjórnendum mikilvægt að koma nokkrum óskrifuðum reglum um ræktarferðir á framfæri.
Aðaláhersla þáttarins er þó á stórslysamyndina Greenland 2: Migration. Hér er nóg af hasar, sterkum tengingum við Ísland og almennt mikið af dramatík og spennu.

Monday Jan 05, 2026
Monday Jan 05, 2026
Í þætti dagsins ræðum við aðeins nýafstaðin áramót, áramótaheit og margt annað skemmtilegt.En að lokum fjöllum við um erótíska spennumyndina The Housemaid.

Monday Dec 29, 2025
Monday Dec 29, 2025
Í þessum þætti tökum við aðeins árið fyrir, ræðum við völvu um framtíð og nútíð og spjöllum bara almennt á léttu nótunum, hvað var það besta og versta sem við sáum á árinu 2025.
Monday Dec 22, 2025
Monday Dec 22, 2025
Hvað getur maður sagt, jólinn nálgast, andinn kominn yfir þáttastjórnendur.En í þætti vikunnar ræðum við um Þorláksmessuhefðir, heimsóknir í kirkjugarða, ljósabúðina og hvork við séum Coke Zero fjölskylda.Að lokum fjöllum við um meistaraverkið sem var frumsýnt í síðustu viku Avatar: Fire and Ash

Monday Dec 15, 2025
Monday Dec 15, 2025
Í þætti dagsins fjöllum við meira um aðventuhátíðina, jólatónleika, gáfur stjórnenda þessa þáttar í barsvari og margt fleira.
En alveg í endan tölum við um slettarann (e. Slasher) Silent Night Deadly night, sem er sennilega ein jólalegasta hrollvekja sem þáttastjórnendur hafa séð lengi!

Monday Dec 08, 2025
Monday Dec 08, 2025
Í þætti dagsins ræðum við um aðventukransa, mannát og reglur sem væri gott að gestir kvikmyndahúsa fylgdu. Að lokum tökum við fyrir myndina Five Nights at Freddy’s 2. Hér er á ferðinni kvikmynd sem hefur skipt áhorfendum í tvær fylkingar: Annars vegar þá sem þekkja heiminn og virðast mjög hrifnir, og hins vegar okkur hin…

Monday Dec 01, 2025
Monday Dec 01, 2025
Í þætti dagsins ræðum við aðventuna, jólamyndir, skipulag göngustíga og margt fleira.En mestan tíma verjum við í að fjalla um hina stórkostlegu finnsku hasarmynd Sisu: Road to Revenge.Allt þetta og meira til í þessum þætti Video Rekkans.

Monday Nov 24, 2025
Monday Nov 24, 2025
Í þætti dagsins ræðum við um Landann, svæðisútvarp og klementínur. En fyrst og fremst ræðum við um Wicked for Good – og þar fáum við til okkar góðan gest sem álitsgjafa. Meira um það í þættinum!

Monday Nov 17, 2025
Monday Nov 17, 2025
Í þætti vikunnar hitum við upp fyrir aðventuna – hvenær er of snemmt að fara að föndra? Einnig rifjum upp gamla slagara með Ríó Tríó
En mestum tíma verjum við að fara yfir hina stjörnuprýddu mynd Now You See Me: Now you dont.






