Video rekkinn
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars.
Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó.
www.videorekkinn.is er heimasíðan okkar.
Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:
https://www.facebook.com/videorekkinn
Eða á Instagram
https://www.instagram.com/videorekkinn1/
Eða Tiktok
https://www.tiktok.com/@videorekkinn
Eða Letterboxd
https://letterboxd.com/Videorekkinn/
Episodes

4 days ago
4 days ago
46 min
Í þætti dagsins berst Hildi óvæntur liðsauki í umræðunni um ágæti myndarinnar Fjord. Þungamiðja þáttarins er þó umfjöllun um myndina Iceguys: The Movie, sem frumsýnd var í síðustu viku. Okkur til halds og trausts í þeirri umræðu er enginn annar en Sóli Hólm, annar handritshöfunda myndarinnar.

Oct 26, 2026
Oct 26, 2026
51 min
Video Rekka-tvíeykið fór aftur tvisvar í bíó þessa vikuna, annars vegar á Fjord í Bíó Paradís og hins vegar á Clayface í Smárabíói.Það er varla hægt að segja að myndirnar tvær eigi mikið sameiginlegt, annað en að báðar hafa leikstjóra, leikara og handrit. Meira um það í nýjasta þætti Video Rekkans.

Oct 19, 2026
Oct 19, 2026
56 min
Í þessari viku fór Video Rekka tvíeykið tvisvar í bíó annarsvegar á suður kóresku myndina Hope og síðan á tölvuleikjamyndina Street Fighter.En við fáum einmitt aðstoð frá góðum gest, honum Arnóri AKA Saltkeisaranum, einum stjórnanda FGCiceland til að kryfja Streetfighter myndina og leikina með okkur.

Oct 12, 2026
Oct 12, 2026
59 min
Í þætti dagsins tökum við fyrir viðfangsefni sem er mörgum Íslendingum í fersku minni, þegar Gorbatsjov og Reagan hittust í Höfða árið 1986. Önnur myndin sem við fjöllum um, The Brink of War, fjallar einmitt um hvað gerðist á bak við luktar dyr í Höfða í október 1986.
Til að varpa enn frekar ljósi á kalda stríðið og mikilvægi fundarins fengum við Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, í viðtal, bæði til að ræða myndina og kalda stríðið almennt.
Í lok þáttar fjöllum við einnig um nýjustu mynd Brads Pitt, Heart of the Beast, hugljúfa sögu um mann og hundinn hans sem lenda í ýmiss konar hrakförum.

Oct 5, 2026
Oct 5, 2026
1 hr 20 min
Í þætti dagsins er eiginlega bara bíó. Við fjöllum um B+ myndina Onslaught, 80´s splatter thriller (ný mynd samt 😂 )sem engin aðdáandi slíkra mynda ætti að láta framhjá sér fara.Við fjöllum um Coyote vs ACME, eina skemmtilegustu fjölskyldumynd ársins. Síðast ekki síst fjöllum við um Digger, mynd sem virðist ætla að tvístra fólki í tvær fylkingar, meistarastykki eða hörmung! :) ATH það er algjörlega bannað að hlusta á þáttinn eftir mínútu 56 ef þú ert ekki búin að sjá Digger, BANNAÐ 🙈
Við viljum líka nota tækifærið og benda fólki á heimasíðuna okkar sem var að fara í loftið. En þar kennir ýmisa grasa, endilega kíkið á www.videorekkinn.is

Sep 28, 2026
Sep 28, 2026
1 hr 8 min
Í þætti dagsins fáum við til okkar góða gesti, en það eru MH-ingarnir Ragnheiður Gréta og Egill Arnarsson. Við fáum aðeins að skyggnast inn í MH lífið, fáum að kynnast borða skipulaginu og hvort týpuálagið sé mikið. En mestum tíma verjum við í að fjalla um bíómyndina Primetime. En sökum þess að aðeins þáttastjórnendur höfðu farið á The Invite í vikunni fékk hún aðeins minna rými en hún átti skilið í lok þáttar.

Sep 21, 2026
Sep 21, 2026
1 hr 22 min
Í þætti vikunnar fjöllum við um nýjustu Resident Evil-myndina, sem kom út fyrir skemmstu. Við treystum okkur ekki ein í þetta verkefni og fengum því mesta tölvuleikjasérfræðing sem við þekkjum í þáttinn til að hjálpa okkur að kryfja málin.

Sep 14, 2026
Sep 14, 2026
53 min
Það er af nógu að taka í þessum nýjasta þætti Video Rekkans. Við byrjum þáttinn á stuttu viðtali við Höskuld Þór Jónsson, leikstjóra Hvar er draumurinn, en við fjölluðum einmitt um þá mynd í síðasta þætti.
Við fjöllum einnig stuttlega um heimildarmyndina Þetta er ekkert mál sem nú fagnar 20 ára afmæli og er af því tilefni aftur komin í bíó.
En mestum tíma verjum við í umfjöllun okkar um hina stórkostlegu bíómynd Pressure, eða Loftþrýstingur á íslensku, æsispennandi mynd um veðurfræðing sem bjargar mannslífum.

Sep 7, 2026
Sep 7, 2026
51 min
Þetta er orðið að nær vikulegum viðburði hjá okkur að skella sér tvisvar í bíó, og að þessu sinni tókum við fyrir Tony, sem fjallar um eitt sumar í lífi lífskúnstnersins Anthony Bourdain.
Svo var ekki verra að hin myndin sem við sáum var ný, íslensk söngvamynd með lögum Sálarinnar hans Jóns míns, Hvar er draumurinn?
En meira um þetta allt saman í nýjasta þætti Video Rekkans.

Aug 31, 2026
Aug 31, 2026
1 hr 20 sec
Að þessu sinni tekur Video Rekka tvíeykið fyrir tvær mjög ólíkar myndir sem voru frumsýndar í vikunni. Annars vegar Motor City, sem er tilraun til að gera 90mín hasarmynd án þess að talað sé í myndinni, hinsvegar fórum við á frumsýningu á nýrri íslenskri heimildarmynd, Um tímann og vatnið.







