Video rekkinn
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars.
Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó.
Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:
https://www.facebook.com/videorekkinn
Eða á Instagram
https://www.instagram.com/videorekkinn1/
Eða Tiktok
https://www.tiktok.com/@videorekkinn
Eða Letterboxd
https://letterboxd.com/Videorekkinn/
Episodes

Jun 22, 2026
Jun 22, 2026
53 min
Í þætti dagsins tölum við um 17 júní, æsta aðdáendur, HM í fótbolta og eina rosalegustu kung fu mynd sem þetta tvíeyki hefur nokkurn tíma séð.

Jun 15, 2026
Jun 15, 2026
1 hr 46 min
Sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum — og við erum tvöfalt fleiri en venjulega, svo við tökum okkur tvöfalt meiri tíma! Á dagskrá eru tjaldstæði, bíóhús og Obsession, en stærsta málið er nýjasta Spielberg-myndin, Disclosure Day!

Jun 8, 2026
Jun 8, 2026
1 hr 14 sec
Í þætti dagsins ræðum við listgjörninga, hetjur samtímans og hetju hvíta tjaldsins — He-Man! Mynd vikunnar er Masters of the Universe .

Jun 1, 2026
Jun 1, 2026
58 min
Í þætti dagsins fjöllum við um Listahátíð í Reykjavík, grillhátíð í Reykjavík, útskriftir í Reykjavík en svo sögur af landsbyggðinni. Að lokum fjöllum við um sálræna tryllinginn sem er Backrooms.

May 25, 2026
May 25, 2026
1 hr 20 sec
Í þætti dagsins fjöllum við um nýliðnar kosningar og greinum ástandið aðeins. Við fjöllum einnig um mikilvægi sólarinnar og hversu vel Magnús Hlynur passar inn á Landann, sumir segja meira að segja að Landinn hafi verið stofnaður honum til höfuðs á sínum tíma.Að lokum fjöllum við um hina stórskemmtilegu Star Wars mynd The Mandalorian and Grogu, mynd sem ætti ekki að svíkja neinn.

May 18, 2026
May 18, 2026
59 min
Eftir óvænt hlé tökum við aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið! Í þætti dagsins ræðum við lífið síðustu vikurnar og förum yfir samskipti systkina. Við gerum kosningabaráttu undanfarinna daga góð skil og að lokum ræðum við nýjustu mynd Guy Ritchie, In the Grey – en þar er mikið um fallegt fólk í fallegum fötum! :)

Apr 20, 2026
Apr 20, 2026
54 min
Jæja góðir hálsar! Vorið er mætt, sumarið er handan við hornið og hryllingsmyndirnar farnar að láta á sér kræla.Við fórum á eina slíka, Lee Cronin´s The Mummy . Það er óhætt að segja að ýmislegt sé um þessa mynd að segja – og það er ekki allt fallegt 👀

Apr 13, 2026
Apr 13, 2026
39 min
Í þætti vikunnar ræðum við umpottun, jarðtengingar á Austurlandi og fólk sem er salt jarðar. En þorra þáttarins verjum við í að ræða hina frábæru I Swear, mynd sem ætti ekki að skilja neinn eftir ósnortin.

Apr 6, 2026
Apr 6, 2026
41 min
Páskaþátturinn 2026 - við ræðum páska, páska og um tvo pípara sem lenda í allskins ævintýrum.

Mar 30, 2026
Mar 30, 2026
49 min
Í þætti vikunnar förum við yfir ýmislegt. Í tilefni páskahátíðarinnar erum við með fróðleiksmola um pálmasunnudag og köfum ofan í það hvernig þeirri hátíð er lýst í Biblíunni. Við skoðum bústaðarferðir, þá sérstaklega muninn á stráka- og stelpubústöðum. En þorra þáttarins fjöllum við um gaman-, hryllings- og spennumyndina They Will Kill You, sem ætti ekki að valda þeim vonbrigðum sem hafa gaman af skemmtilegum splatter-myndum.“







