Video rekkinn

Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó. Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans: https://www.facebook.com/videorekkinn

Listen on:

  • Apple Podcasts
  • Podbean App
  • Spotify
  • Amazon Music
  • iHeartRadio
  • PlayerFM
  • Podchaser

Episodes

Monday Sep 08, 2025

Í dag ræðum við 💃 dansmenningu, 🍰 lagtertuna, 🎄 hvenær sé viðeigandi að hefja jólaundirbúning og 🤕 þynnkustúss annars þáttastjórnandans.
Stærstan hluta þáttarins verjum við þó í The Conjuring: Last Rites (2025) 👻 – framhald sem enginn okkar hafði séð fyrri myndirnar úr, en það virtist ekki koma að sök… að minnsta kosti að okkar mati 😅.

Monday Sep 01, 2025

Í þessum þætti tökum við púlsinn á vinnustaðamenningunni á Íslandi 💼🇮🇸 þegar haustið skellur á 🍂 og allt verður á fleygiferð, mætti kalla það hausttrylling ⚡️. Við ræðum heilagan anda í messum ⛪️✨ og spyrjum álitlegra spurninga 🤔 t.d. er þjóðkirkjan cult? 🕵️‍♂️
Að lokum förum við yfir nýjustu kvikmynd Darren Aronofsky 🎬, Caught Stealing, með Austin Butler 💘 og Zoë Kravitz 🌟 í aðalhlutverkum.

Monday Aug 25, 2025

Í nýjasta þætti Video Rekkans 🎬 förum við yfir Menningarnótt 🎆, fögnum endurkomu rútínunnar 📅 og kveðjum sumarið ☀️. Við hjónin 💑 leyfum ykkur líka að kíkja aðeins bakvið tjöldin 🎭 í hjónalífinu – þá einna helst hvernig þöglar rökræður 🤐🗣️ fara fram.
Að þessu sinni tókst okkur meira að segja að verða ósammála 🤔⚡ um kvikmyndina Together (2025) 🎥 – sem er ekki á hverjum degi. Allt þetta og meira til í nýjum þætti! 🎧✨

Monday Aug 18, 2025

Í þætti vikunnar 🙏 tölum við um einhvers konar kristilegan markþjálfa, ræðum hvernig RZA 🥃 eldist eins og gott koníak — og minnumst á hversu ótrúlega fallegur Austin Butler 😍 er. Að lokum förum við yfir hina bráðskemmtilegu Nobody 2 🎬.
 
 

Monday Aug 11, 2025

Í þætti dagsins 🌈 kíkjum við aðeins á Hinsegin daga og ræðum erótískt stjörnulíf ✨💫.
Aðalumfjöllun dagsins 🎬 er þó hin stórkostlega Weapons 🔪 – mynd sem er í senn taugatrekkjandi 😱, skemmtileg 😄, dularfull 🕵️‍♂️ og svo ótrúlega margt fleira 🎭.

Monday Aug 04, 2025

Í þætti dagsins 🎙️ ræðum við Þjóðhátíð 🎉 og kíkjum létt yfir aðrar sumarhátíðir ☀️🍻. Við fjöllum líka um skemmtilegar stunur í ræktinni 🏋️‍♂️😅 og snjalla pikkup-aðferð á sama stað 💪😉.
 
Mestu púðri verjum við þó í hina frábæru Naked Gun 🔫😂 þar sem nýjasta ofurpar Hollywood, Liam Neeson og Pamela Anderson, leiða saman hesta sína 🎬🌟.

Monday Jul 14, 2025

🎙️ Í þætti dagsins förum við á flug 🛫 — tölum um hámarkspumpumagn rakspíra 💪, týpurnar í ræktinni 🏋️‍♂️, verðbólguna í hádegismatnum 💸 og gefum hlustendum smá lifehack til að panta mat fyrir tvo 🍔🍟 á 5000kall heim!
 
👉 En mestu tímanum eyðum við í nýjustu Superman-myndina 🦸‍♂️ þar sem við veltum því fyrir okkur hvort hér sé í raun verið að endursegja söguna af honum Jesú frá Nasaret ✝️. Eins og dyggir hlustendur vita er Video Rekkinn auðvitað kristilegt hlaðvarp… og á því er engin breyting þennan daginn 🙈.

Monday Jul 07, 2025

Í þætti dagsins 📻 förum við yfir hvað sé eiginlega í gangi með grasbala Reykjavíkur 🌾 – og svo ræðum við leiðinlegt fólk 😒… eða réttara sagt, hversu ótrúlega mikið það virðist leggja sig fram við að vera leiðinlegt. Þá snúum við okkur að Hjarta Hafnarfjarðar ❤️ og að lokum köfum við ofan í nýjustu myndina í júragarðsseríunni 🦖🎬 – og já, það er ýmislegt sem má segja um hana…

Monday Jun 30, 2025

Í þætti dagsins ræðum við ótrúlega húð Brad Pitt ( er hún góð eða ekki?) ✨, mögulega bresti Brad Pitt og alls kyns annað Brad Pitt-tengt 🎥. Við fjöllum frjálslega um dyraöt og hversu langt má ganga í að hræða börn sem stunda þá iðju 🤨. Við tökum líka púlsinn á leiðinlegu fólki í lystigörðum 🎢🙃, seinagang verktaka og margt fleira.
En stærsti hluti þáttarins fer í bíómyndina F1 🏎️💥, sem lætur okkur ekki gleyma að hún er einmitt… bíómynd 🎬 ( The Movie).
 
Allt þetta og meira til í pakkaðri útgáfu af Video Rekkanum! 📦🎙️

Monday Jun 23, 2025

Í þætti vikunnar ræðum við kolefnissporið við að vera til 🌍, einkaflugvélar ✈️, fegurð fótboltafólks ⚽😍, kött með Hitlerskegg og hvort það sé í lagi að hlutgera fólk í opinberum störfum 🏛️🤔.
 
Stærstur hluti þáttarins fer þó í að ræða hina umdeildu 😮, áhrifaríku 🎥 og ótrúlega fallegu ✨ 28 Years Later.

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125